Starfsumsóknir hjá Teiti

Ertu hress og viltu starfa með hressu fólki? Við leitum að bílstjórum með rútupróf til að aka hópferðabílum og áætlunarbílum.

Ef þú ert þessi hressi eða hressa, sendu okkur þá ferilskrá og eða umsókn á info@teitur.is. Nánari upplýsingar gefur Haraldur í síma 515-2700.

  Nýr bíll í flotann hjá Teiti

Teitur keypti í sumar glænýjan Mercedes Benz 818d 4x4 trukk. Þessi frábæri bíll er 20 sæta og búinn öllum helstu þægindum og öryggisbúnaði.

TEITUR HÓPFERÐIR er alhliða ferðaþjónustu- fyrirtæki fyrir innlenda og erlenda ferðamenn

TEITUR HÓPFERÐIR hefur til umráða 26 hópferðabíla af ýmsum gerðum og getur því boðið uppá fjölbreyttan fararkost sem hentar við öll tækifæri.

  Öryggisbelti eru fyrir farþega
í öllum hópferðabílum Teits.

  Hérna eru nánari upplýsingar um hópferðabílana okkar

Óvissuferðirnar með okkur virka sem vítamín
fyrir hópinn ykkar!

TEITUR tekur að sér ferðaskipu- lagningu fyrir óvissuferðir af öllu tagi. Dagskráin er alltaf klæðskerasaumuð eftir þörfum hvers hóps fyrir sig.

Óvissuferðir bera keim af ævintýrinu. Ferðin undirbúin í samráði við ein- hvern frá fyrirtæki, til dæmis yfirmann eða formann starfsmannafélags með algerri leynd. Því færri sem vita áætlun ferðarinnar, því betra.

  Nánari upplýsingar hér um óvissuferðir TEITS HÓPFERÐA