Ferðahugmyndir

Eins dags ferðir:

      Ferðir fyrir fyrirtækjahópa

      Óvissuferðir fyrir hresst fólk

      Skólaferðir fyrir börn og unglinga

      Ferðaþjónusta fyrir eldri borgara

      Hugmyndir að öðrum dagsferðum

Tveggja daga ferðir:

      Töfrar Borgarfjarðar

      Orkan á Snæfellsnesi

Þriggja daga ferð:

      Suðurströndin heillar

Þriggja til fimm daga ferð:

      Hálendið í hnotskurn

Lumar þú á hugmynd í tengslum við óvissuferð? Það er líklegt að við getum látið hana rætast!

Óvissuferðir fyrir hresst fólk

TEITUR tekur að sér ferðaskipulagningu fyrir óvissuferðir af öllu tagi. Dagskráin er alltaf klæðskerasaumuð eftir þörf- um hvers hóps fyrir sig. Óvissuferðir bera keim af ævin- týrinu. Ferðin undirbúin í samráði við einhvern frá fyrirtæki, t.d. yfirmann eða formann starfsmannafélags með algerri leynd. Því færri sem vita áætlun ferðarinnar, því betra.

Hægt er að skipuleggja óvissuferð eftir hefðbundin vinnutíma, á kvöldin, heilan dag frá morgni til kvöld, frá hádegi og fram á kvöld og með gistingu yfir helgi; allt eftir þínum óskum. Við bjóðum upp á fararstjórn þrautreyndra fararstjóra í hverri ferð þannig að ALLIR gestir geti einbeitt sér áhyggjulausir að skemmtun dagsins og þurfi ekki að pæla í smáatriðunum sem verða að vera í lagi í svona ferðum og geta tekið á hugsanlegum vandamálum.

Við bjóðum einnig upp á hópefli af alvarlegra tagi í samráði við fagaðila ef ætlunin er að efla samstarfsandann, auka sölu, hvetja starfsmenn eða t.d. íþróttafélag til dáða. Við leggjum á það ríka áherslu að hver einasta óvissuferð á vegum TEITS er klæðskerasaumuð - við nostrum við smáatriðin um leið og við missum aldrei sýn á heildarmyndina!

  Jöklaferðir     Vélsleðaferðir     Hundasleðaferðir     Hestaferðir     Fjallhjólaferðir
  Flúðasigling     Snjóleikir af ýmsu tagi     Einkabíó     Kayaksigling     Skautahöllin
  Hellaskoðun     GPS ratleikur     Bogfimi     Gufubað á Laugarvatni     Bláa lónið
  Gufubað á Laugarvatni     Keila     Víkingarán í Fjörukránni     ... og margt fleira